„Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur,“ sagði Andre Onana í viðtali hjá Símanum eftir 2:0 sigur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
United tapaði 3:1 gegn Manchester City í síðasta leik og með því mikilvægum stigum í samkeppninni um sæti í Meistaradeildinni.
„Ég held að við fundum ekki fyrir auka pressu heldur auka hvatningu," sagði Onana í samtali við Síminn Sport.
„Það tók mig nokkra mánuði til þess að líða vel í þessu landi. Það tekur tíma fyrir suma að aðlagast en ég fékk góðan stuðning og mér líður betur.“
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann sport.