Cole Palmer, leikmaður Chelsea, hefur verið valinn leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Palmer fór algjörlega á kostum í apríl en hann skoraði sjö mörk í fjórum leikjum ásamt því að leggja annað upp.
Chelsea-maðurinn hefur átti frábært tímabil með Chelsea og skorað 21 mark. Þá er hann fyrsti leikmaður Chelsea til að hljóta verðlaunin síðan Eden Hazard vann þau í september 2018.