Hertogahjónin af Sussex, Harry og Meghan, starfa ekki lengur fyrir bresku konungsfjölskylduna en hafa það samt nokkuð gott í Bandaríkjunum. Að minnsta kosti getur Meghan hertogaynja klæðst fokdýrum fötum þegar hún mætir á viðburði.
Hjónin mættu á dögunum á listaviðburð í Los Angeles. Klæddist Meghan einstaklega fallegri kápu með stuttum ermum frá Carolina Herrera. Kápan er svört en með fallega bróderuðum blómum sem gáfu yfirhöfninni konunglegt yfirbragð. Kápuna er að finna á vef Carolina Herrea og kostar hún 3.790 dollara eða vel yfir hálfa milljón íslenskra króna.
Móðir Meghan, Doria Ragland, mætti einnig sem og móðir Beyoncé, Tina Knowles. Mæðrum stjarnanna virtist koma vel saman á listasýningunni.
Meghan er greinilega aðdáandi merkisins og er þetta ekki í fyrsta skipti sem hún klæðist fötum frá Carolina Herrera. Hún klæddist rauðum síðkjól frá merkinu þegar hún og Harry mætti á galaviðburð í New York árið 2021. Þótti hún einstaklega glæsilega til fara í kjólnum.