Páskavikan var sannarlega lífleg á Instagram! Sólin skein í Höfuðborginni og vorfílingurinn orðinn það mikill að stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, dró stuttbuxurnar fram á meðan tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hlynnti að garðinum sínum.
Jón Gnarr, skemmtikraftur og listamaður, er talinn vera að undirbúa forsetaframboð. Spurning hvort að hann ætli að vera bæði með húfu og kúrekahatt þegar hann tilkynnir um framboð?
Stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason var í góðum páskagír. Hann lét ekki veðrið á sig fá í vikunni og skellti sér í frakka yfir stuttbuxurnar.
Eurovsion-stjarnan Hera Björk Þórahallsdóttir er á ferð og flugi að kynna lagið sitt. Hún skellti sér til Madrídar á dögunum.
Rúrik Gíslason skellti sér til Berlínar og náði að gera mikið á stuttum tíma.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sýndi fylgjendum sínum hvernig ástandið er í garðinum. Þetta mjakast allt saman.
Jón Jónsson og fjölskylda skelltu sér til sólarlanda um páskana. Þau tóku bara handfarangur með en nokkur páskaegg voru að sjálfsögðu með í för.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson og Edgar Antonio Lucena Angarita gengu í hjónaband í síðustu viku.
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, er í fæðingarorlofi og nýtur þess að vera í sólinni með sjö vikna gamlan son sinn.
Aron Can sýndi þakklæti sitt eftir að hann var valinn Söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum 2024.
Tónlistarkonan Bríet hefur ferðast heimshorna á milli síðastliðnar vikur, en hún eyddi ljúfum stundum í Balí og Japan. Um páskana hélt hún uppi stuðinu á Ísafirði.
Sólbjört Sigurðardóttir átti glaðlegan og gefandi marsmánuð.
Leikkonan og Reykjavíkurdóttirin Þórdís Björk Þorfinnsdóttir sýndi stækkandi óléttukúluna.
Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari í Dimmu fögnuðu ástinni með páskasleik.
Rapparinn Emmsjé Gauti brosti breitt er hann tilkynnti um nýja tónlist.
Erna Kristín birti fallega og brosmilda fjölskyldumynd um leið og hún þakkaði fylgjendum sínum fyrir hlýlegar afmæliskveðjur.
Páskarnir eru í sérstöku uppáhaldi hjá förðunardrottningunni Lilju Dís Smáradóttur ef marka má nýjustu færslu hennar um páskana.
Áhrifavaldurinn Sigríður Margrét Ágústsdóttir er stödd á Spáni þar sem hún nýtur lífsins til hins ýtrasta.
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir birti páskasjálfu!
Markaðsfræðingurinn og fyrrverandi hlaupadrottningin Dóróthea Jóhannesdóttir bíður spennt eftir að fjölskyldan stækki.