Vikan á Instagram var stútfull af stuði og stemningu! Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hélt þrenna tónleika í Hörpu, hjónin Milla Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson skemmtu sér á árshátíð ráðhússins og Sunneva Einarsdóttir fékk sér hvolp.
Það sem einkenndi vikuna líka var hlébarðamynstur, en að undanförnu hefur mynstrið verið með skemmtilega endurkomu í tískuheiminn og er það allra heitasta um þessar mundir – enda voru þau Hrafnhildur Haraldsdóttir, Patrik Atlason, Ágúst Beinteinn Árnason og Friðþóra Sigurjónsdóttir öll klædd í hlébarðamynstur!
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Eldborgarsal Hörpu á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Landsmenn voru áhugasamir um tónleikana og seldist upp á tvenna tónleika Laufeyjar á nokkrum mínútum. Þá var aukatónleikum bætt við og seldist einnig upp á þá.
Förðunarfræðingurinn og læknaneminn, Valdís Harpa Porča, skellti sér í skíðaferð til Jasná í Slóvakíu þar sem hún átti ljúfar stundir í góðra vina hópi.
Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir hélt upp á afmælið sitt um helgina, en þemað var morðráðgátur og grímur.
TikTok-stjarnan og förðunarfræðingurinn, Embla Wigum, brosti sínu breiðasta þegar hún heimsótti Disneyland í París.
Það er óhætt að segja að Hulda Ósmann lifi draumalífi margra Íslendinga um þessar mundir, en hún er búsett á Tenerife og getur því spókað sig um á bikiníi allan ársins hring.
Hjónin Milla Magnúsdóttir aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur skemmtu sér greinilega vel á árshátíð ráðhússins.
Fasteignasalinn Tara Sif Birgisdóttir og plötusnúðurinn Dóra Júlía Agnarsdóttir tóku vel á því á boxæfingu.
Lífið leikur við fyrrverandi frjálsíþróttadrottninguna Dórótheu Jóhannesdóttur þessa dagana, en hún er stödd í draumafríi á Kanarí ásamt fjölskyldu sinni.
Vikan var sannarlega viðburðarrík hjá áhrifavaldinum og hlaðvarpsstjörnunni Sunnevu Einarsdóttir. Hún mætti að sjálfsögðu í afmælisveislu vinkonu sinnar, Birtu Lífar, en í vikunni kynnti hún einnig nýjan fjölskyldumeðlim fyrir fylgjendum sínum.
Fegurðardrottningin Hrafnhildur Haraldsdóttir er byrjuð að klæðast hlébarðamynstri sem virðist vera það allra heitasta í tískuheiminum um þessar mundir.
Hrafnhildur var ekki sú eina sem klæddist hlébarðamynstri í vikunni. Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, og útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, voru báðir í hlébarðamynstri!
Friðþóra Sigurjónsdóttir, kærasta Patriks Altasonar, var í trylltu loðvesti með hlébarðamynstri um helgina!
Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og eigandi Andreu í Hafnarfirði brá undir sig betri fætinum og fór til Danmerkur. Nánar tiltekið til Árósa en þar klæddi húns sig upp á.
Birgitta Líf Björnsdóttir var tíður gestur á skemmtistöðum Reykjavíkur en nú hefur fjölskyldulífið tekið við en hún og Enok Jónsson eignuðust son á dögunum.