Stærsti laxinn til þessa í Miðfjarðará í sumar veiddist í vikunni og mældist 101 sentímetri. Áður hafði veiðst lax sem mældist 100 sentímetrar. Báðir þessir laxar veiddust í Grjóthyl. Nú er komið á daginn að þetta er sami laxinn. Samanburður á myndum af fiskunum tveimur tekur af allan vafa um þetta.
Fyrst veiddi Theódór Friðjónsson laxinn 2. ágúst og það á Collie dog flottúbu. Með Theódór var Helgi Guðbrandsson leiðsögumaður og mældu þeir fiskinn í sameiningu upp á slétta hundrað sentímetra. Fiskinum var sleppt og birtar myndir af honum.
Svo gerðist það síðastliðinn miðvikudag að Stebbi Lísu var að veiða Grjóthyl og setti í svakalegan fisk sem mældist 101 sentímetri og þar með sá stærsti í Miðfirðinum í sumar. Tók fiskurinn Black Brahan flugu númer tólf.
Helgi Guðbrandsson leiðsögumaður taldi sig kannast við laxinn og bar saman myndir af þessum tveimur fiskum og kom fljótt og örugglega í ljós að um sama fiskinn er að ræða.
Doppur á höfði hvers lax eru einstakar, ofurlítið eins og fingraför okkar mannfólksins. Þegar myndirnar eru skoðaðar má sjá mjög skýrar doppur aftur frá auganu og einnig þrjár sem liggja í boga aðeins ofar.
Það að fiskurinn mælist nú einum sentímetra lengri er fullkomlega eðlilegt þar sem skolturinn gengur fram og krókurinn verður vígalegur. Þessar mælingar segja okkur að hann hafi verið nákvæmlega mældur í bæði skiptin. Svona virkar veiða og sleppa.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |