Karl Bretakonungur mun snúa aftur til opinberra starfa í næstu viku. Breska konungshöllin segir að krabbameinsmeðferð hans gangi vel.
Konungur mun stíga varlega til jarðar eftir endurkomuna. Fyrsta verkefni hans verður táknræn heimsókn á krabbameinsmeðferðarstöð. Meðal áforma konungs í sumar verður að taka á móti keisarahjónum Japans í opinberri heimsókn þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá höllinni er Karl enn í krabbameinsmeðferð og of snemmt er að segja til um hvenær henni muni ljúka. Segir í yfirlýsingu að læknar konungs séu ánægðir með hvernig hann hafi svarað meðferðinni og bjartsýnir á að hann nái bata.