Los Angeles Lakers sigruðu Denver Nuggets í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Denver eru enn einum sigri frá sæti í 8-liða úrslitum.
Lebron James skoraði 30 stig og Anthony Davis skoraði 25 stig og tók heil 23 fráköst í 119:108 sigri Lakers í nótt. Nikola Jokic var óstöðvandi að venju í liði Denver en hann var með þrefalda tvennu, 33 stig, 14 fráköst og 14 stoðsendingar.
Liðin mætast á nýjan leik í Denver á mánudag.
Önnur úrslit
Orlando Magic - Cleveland Cavaliers 112:89 (2:2)
New Orleans Pelicans - Oklahoma City Thunder 85:106 (0:3)
Miami Heat - Boston Celtics 84-104 (1:2)