Anna Karen Hansdóttir, leikmaður Stjörnunnar í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Stjörnunnar kemur ekki fram hve langur nýi samningurinn er en hún hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020
Anna Karen er 22 ára gömul og leikur í stöðu vinstri hornamanns. Hún er fædd og uppalin í Danmörku og lék þar með Egebjerg, Skanderborg og Horsens.
,,Anna Karen hefur marga kosti sem leikmaður, spilar í vinstra horni í sókn en getur spilað margar stöður í vörn, hefur mikinn metnað fyrir íþróttinni og er ég mjög ánægður að hún verði áfram hjá okkur í Garðabænum,” sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, í tilkynningunni.