Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hafnaði í 13. sæti á Bain´s Whisky Cape Town-mótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku en mótinu lauk í dag en mótið var hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri næststerkustu í heimi.
Haraldur Frankín lék fjórða og síðasta hringinn í dag á samtals 66 höggum eða sex höggum undir pari en hann fékk sjö fugla á hringnum og einn skolla.
Haraldur deildi efsta sætinu eftir fyrstu tvo hringina en honum fataðist flugið á þriðja hringnum í gær þar sem hann lék á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins.
Haraldur lék á samtals 277 höggum eða ellefu höggum undir pari og deildi þrettánda sætinu ásamt fimm öðrum kylfingum.