Valinn besti leikmaður bikarkeppninnar

Stefán Teitur Þórðarson með verðlaunin eftir leikinn í dag.
Stefán Teitur Þórðarson með verðlaunin eftir leikinn í dag. Ljósmynd/Silkeborg

Stefán Teitur Þórðarson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var valinn besti leikmaðurinn í dönsku bikarkeppninni tímabilið 2023-2024 eftir úrslitaleikinn á Parken í Kaupmannahöfn í dag.

Silkeborg vann þar AGF, 1:0, og að leik loknum var Stefán heiðraður sérstaklega með þessum verðlaunum.

Stefán lék alla átta leiki Silkeborg í bikarkeppninni á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert