Sveindís sigraði Glódísi í úrslitaleik

Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur í Wolfsburg eru bikarmeistarar.
Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur í Wolfsburg eru bikarmeistarar. AFP/Simon Wohlfahrt

Wolfsburg er þýskur bikarmeistari í knattspyrnu kvenna eftir sigur á Bayern München í úrslitaleik, 2:0, í Köln í dag.

Er Wolfsburg þar með komið með tíu bikarmeistaratitla og níu í röð. 

Bæði mörk Wolfsburg komu í fyrri hálfleik en það fyrra skoraði Jule Brand og Dominique Janssen skoraði seinna. 

Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á 68. mínútu. Þá lék Glódís Perla Viggósdóttir allan leikinn fyrir Bayern en Cecilía Rán Rúnarsdóttir er meidd. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert