Í tilefni komandi forsetakosninga ákvað Smartland að skyggnast á bak við tjöldin og spyrja forsetaframbjóðendur spjörunum úr. Forvitnast um það sem fáir vita en allir ættu hins vegar að vita.
Fimm spurningar fyrir forsetaframbjóðendur: Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Fyrsti kossinn?
„Það var einhver lánsamur skólabróðir sem hreppti fyrsta kossinn á Höfn í Hornafirði.“
Hvaða plaköt prýddu veggi herbergis þíns á unglingsárunum?
„Metallica, Guns N' Roses og Samantha Fox.“
Fyrstu tónleikarnir?
„Mamma vill meina að það hafi verið Björk, sú eina sanna, þegar hún kom fram mjög ung í miðbænum uppi á þaki.“
Uppáhalds árstíð?
„Vorið er í algjöru uppáhaldi. Það er svo gaman að sjá lífið lifna við, litina birtast og heyra fuglana syngja eftir veturinn.“
Botnaðu setninguna: Minn forseti er... :
„Maður fólksins, ópólitískur, trúr og traustur sinni þjóð og með kjark til að standa upp þegar á móti blæs.“