Sannkölluð afmælisvika er að baki. Tónlistarkonan Bríet hélt upp á 25 ára afmælið sitt með stæl. Tara Sif Birgisdóttir fasteignasali fagnaði afmæli sínu á Tenerife, fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason varð fertugur og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikkona varð 33 ára. Jón Jónsson tónlistarmaður óskaði eiginkonu sinni til hamingju með afmælið.
Fyrirsætan og fyrrverandi fegurðardrottningin Birta Abiba naut lífsins á suðrænum slóðum.
Ofurhjónin Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité birtu skemmtilegar brúðkaupsmyndir í vikunni – að sjálfsögðu í ræktinni líka!
Flugfreyjan og fyrrverandi fegurðardrottningin Hugrún Birta Egilsdóttir birti skemmtilega mynd af sér ásamt móður sinni og systrum.
Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar hélt upp á 25 ára afmælið með stæl!
Bríet var ekki sú eina sem fagnaði hækkandi aldri, en fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason varð fertugur og fagnaði því með fjölskyldu og vinum!
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir er greinilega spennt fyrir sumrinu, en hún klæddi sig upp í fallegan kjól í sumarlegum litum.
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson fór í skemmtilegt ferðalag ásamt dóttur sinni þar sem þau hittu meðal annars glæsilegan írskan úlfhund.
Það voru fleiri afmæli í vikunni! Fasteignasalinn og dansarinn Tara Sif Birgisdóttir fagnaði hækkandi aldri á Tenerife með fjölskyldu sinni.
Þjálfarinn Indíana Nanna Jóhannsdóttir skellti sér á ketilbjöllunámskeið í New York-borg!
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var hæstánægð þegar hún veitti Páli Braga Hólmarssyni verðlaun um helgina, en þeir Páll og Vísir frá Kagaðarhóli sigurðu tölt tölt í Meistaradeild Líflands.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens birti mynd af sér í ræktinni, en hann var með falleg skilaboð um lífið til fylgjenda sinna.
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir fagnaði 33 ára afmæli sínu og segir það vera „skítfínt“ að eldast!
Helgi Ómarsson, ljósmyndari og hlaðvarpsstjórnandi, gekk upp á Helgafell ásamt hundinum sínum.
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, dreif sig á djammið á föstudagskvöld. Hún skellti í sjálfu í tilefni þess.
Guðmundur Birkir Pálmason, kírópraktor og áhrifavaldur, betur þekktur sem Gummi Kíró, brallaði ýmislegt á laugardaginn.
Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, greindu frá kyni ófædds barns síns.
Birta Líf Ólafsdóttir fagnaði þriggja ára afmælisdegi dóttur sinnar á dögunum.
Birgitta Líf Björnsdóttir fagnaði ásamt samstarfsfólki sínu á árshátíð World Class um helgina. Hvítt þema var á árshátíðinni og klæddist Birgitta Líf fallegum hvítum síðkjól.
Fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson deildi skemmtilegum myndum frá hringferð hans og Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda.
Listakonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Gréta Kristín Ómarsdóttir tóku mynd.
Eva Ruza Miljevic klæddi sig upp í fínu fötin.
Jón Jónsson tónlistarmaður og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eru alltaf jafn ástfangin. Jón óskaði eiginkonu sinni til hamingju með afmælið með sjóðheitri mynd.