TikTok-stjarnan Emily Mariko gekk í það heilaga með hugbúnaðarverkfræðingnum Matt Rickard hinn 23. júlí síðastliðinn. Parið trúlofaði sig árið 2021.
Samfélagsmiðlastjarnan deildi fallegu myndbandi frá brúðkaupsdeginum á TikTok-reikningi sínum, en þar sést hún ásamt föður sínum ganga til brúðgumans sem bíður með tárin í augunum.
Mariko sem er með yfir 12 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum TikTok hefur öðlast vinsældir fyrir bráðskemmtileg matreiðslumyndbönd sín.
Árið 2021 vakti hún mikla athygli fyrir myndband sem sýnir Mariko matreiða einfaldan laxa- og hrísgrjónarétt, en til þess að fullkomna máltíðina notast hún við sniðugt leynivopn.