Það var mikil stemning á Bryggjunni Brugghúsi þegar staðurinn fagnaði nýjungum af ýmsu tagi.
Hjálmar Jakob Grétarsson veitingamaður keypti staðinn af Sigmari Vilhjálmssyni, Simma Vill, árið 2022 en hann er menntaður matreiðslumaður. Nú hefur gamall vinur hans, Hjörvar Hermannsson fjárfestir, komið inn í reksturinn með honum.
Þeir félagar tóku sig til og breyttu innréttingum og hafa lyft staðnum upp, þó ekki bara með nýjum innréttingum heldur ferskum matseðli og drykkjarseðli.
Vel var mætt í boðið hjá Hjálmari og Hjörvari eins og sést á myndunum!