Við Barðaströnd á Seltjarnarnesi er að finna einstaklega eigulegt og smart raðhús sem reist var 1967. Húsið státar af útsýni yfir Esjuna og sundin blá. Húsið er 173 fm að stærð og hefur verið vel hugsað um það. Við húsið er sólríkur garður sem snýr í suður.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu. Í eldhúsinu er til dæmis nýleg innrétting í svörtum lit og með gráum borðplötum. Hluti af innréttingunni er hvítur og sprautulakkaður og kemur það vel út. Úr eldhúsinu er útsýni annars vegar í norður og hins vegar í vestur.
Húsið er á pöllum og hefur að geyma fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi sem búið er að endurnýja með gráum flísum og sprautulökkuðum innréttingum.
Eins og sést á myndunum er húsið vel skipulagt og fjölskylduvænt.