Harpa Karlsdóttir, skrifstofustjóri hjá Heilsugæslunni, og Gunnar Gunnarsson ljósmyndari hafa sett íbúð sína við Rauðarárstíg á sölu. Harpa var fyrirsæta og plötusnúður á sínum yngri árum en Gunnar er þekktur tískuljósmyndari. Harpa var mikið í sviðsljósinu fyrir mörgum árum þegar hún var kærasta Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda en svo fann hún ástina og giftist Gunnari sínum 2019 en þá voru þau búin að vera par í 18 ár.
„Við Gunni kynntumst gegnum Séð og Heyrt, það ágæta blað sem fæstir könnuðust við en allir lásu á sínum tíma,“ sagði Harpa í samtali við Smartland 2019.
Gunni var ljósmyndari á blaðinu og Harpa var tíður gestur á síðum þess. Sem er ekkert skrýtið. Harpa hefur alltaf skorið sig úr hópnum og þannig var það líka á brúðkaupsdaginn þegar hún gekk að eiga Gunna sinn í hlébarðabuxum og Guns´n Roses jakka. Það er varla hægt að toppa það. Það er því ekki annað hægt en að spyrja hana út í jakkann.
„Ég keypti þennan jakka í Zöru á Tene fyrir um fjórum árum síðan en keypti svo merkið á Ebay og saumaði á frakkann fyrir tónleikana með Guns´n Roses á Laugardalsvellinum,“ segir hún og hlær.
Harpa og Gunnar festu kaup á íbúðinni 2007 sem nú er hún komin á sölu. Um er að ræða 129 fm íbúð sem er á efstu hæð í húsi sem reist var 1991. Í íbúðinni má koma auga á tískustrauma þess tíma, sem þykja móðins í dag, eins og hleðslugler og munstraðar flísar.
Stórir gluggar prýða íbúðina sem státar af útsýni yfir Reykjavík og til fjalla. Hallgrímskirkja sést til dæmis vel út um gluggana í stofunni.
Eldhús, stofa og borðstofa renna saman þótt rýmið sé ekki galopið. Í eldhúsinu er innrétting með svörtum hurðum og svörtum borðplötum. Lítil eyja stúkar eldhúsið af inn í borðstofuna en útgengi er úr borðstofunni út á svalir.
Hátt er til lofts í íbúðinni og mikil birta og er íbúðin á tveimur hæðum.