Ebba Guðný Guðmundsdóttir uppskriftahöfundur, leikkona og sjónvarpskokkur er matgæðingur fram í fingurgóma og leggur mikla áherslu að vera með lífræn hráefni. Yfir vetrartímann finnst Ebbu fátt betra en að ylja sér við heitan bolla með ekta súkkulaði og þá velur hún líka lífræn og góð hráefni. „Þegar ég laga heitt súkkulaði finnst mér skipta máli að vera með gott súkkulaði og ég vel ávallt súkkulaðið frá Kaju Organic. Það er langbesta súkkulaðið og miklu sætara, hollara og hreinna en annað 70% kakó finnst mér. Hið mesta hnossgæti, ég elska að njóta þessa,“ segir Ebba og brosir við tilhugsunina að gæða sér á heitu súkkulaði.
Ebba sviptir hér hulunni af sinni uppáhaldsblöndu að heitu súkkulaði sem hún lagar gjarnan á dimmum, köldum vetrardögum í janúar og febrúar.
Heitt súkkulaði að hætti Ebbu
Aðferð: