Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsli eftir þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut á móts við Haukahúsið laust eftir klukkan 13 í dag.
Að sögn Jónasar Árnasonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, þurfti ekki að kalla út dælubíl en einn aðili hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild með minni háttar meiðsli.
Talsverð bílaröð myndaðist á Reykjanesbrautinni í átt til Hafnarfjarðar í kjölfar árekstursins enda er umferðin jafnan þung á brautinni.