Kvikmyndaframleiðandinn Carol Baum er ekki aðdáandi bandarísku leikkonunnar Sydney Sweeney. Baum var viðstödd sérstaka sýningu á kvikmyndinni Dead Ringers nú á dögunum og sagði álit sitt á ungu leikkonunni í umræðum eftir sýningu.
Baum, konan á bak við myndir eins og Father of the Bride og framhald hennar, Father of the Bride: Part II, sagðist hvorki botna upp né niður í vinsældum Sweeney.
„Hún er ekki sæt og hefur enga leiklistarhæfileika. Hún er á allra vörum. Ég skil bara ekki af hverju?“ sagði Baum við fullan sal áhorfenda.
Baum sagðist einnig hafa horft á rómantísku gamanmyndina Anyone But You til að fá dýpri skilning á vinsældum leikkonunnar en hún viðurkenndi að myndin væri með þeim „alverstu“ sem framleiddar hafa verið.
Sweeney hefur ekki tjáð sig um orð Baum.