Samningar hafa náðst um að Regus opni nýja fjarvinnuaðstöðu við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsnæðið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka, en hefur síðastliðið ár verið heimili frumkvöðlasetursins Árnasetur.
Í tilkynningu segir að stefnt sé að opnun aðstöðunnar í apríl.
„Auk ljósleiðaratengingar og góðrar kaffiaðstöðu mun Regus bjóða upp á sérskrifstofur, sameiginlega vinnuaðstöðu og fullbúinn fundarsal sem búinn verður öllum tækjabúnaði sem nauðsynlegur er fyrir fjarvinnu og fjarfundi og í samræmi viðnýjustu staðla Regus á heimsvísu.“
Um 24 manns geta starfað í húsnæðinu á sama tíma auk þess sem fleiri geta nýtt sér fundaraðstöðu í húsinu.
Regus rekur skrifstofusetur á höfuðborgarsvæðinu, á Ísafirði og í Borgarnesi. Þá hyggst Regus opna fjögur ný útibú á þessu ári; tvö á höfuðborgarsvæðinu, eitt á Siglufirði og fyrrnefnda aðstöðu í Stykkishólmi. Þá verða 13 skrifstofusetur í rekstri Regus.