Yfir 70 þúsund sendingar sóttar í Dropp

Nú hefur þjónustan verið tekin upp á nær öllum þjónustustöðvum …
Nú hefur þjónustan verið tekin upp á nær öllum þjónustustöðvum N1 á landsbyggðinni.

Viðskiptavinir N1 hafa sótt yfir 70.000 sendingar í gegnum Dropp þjónustuna á þjónustustöðvum N1 á því rúma ári sem liðið er frá því að þessi nýjung var tekin upp. Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1. Þetta gera um 200 sendingar á dag.

Dropp felur í sér að viðskiptavinir geta valið á hvaða þjónustustöð N1 vörur frá ýmsum netverslunum verða afhentar og er þá jafnvel hægt að sækja pakkann hvenær sem er sólarhringsins.

Meðal vörumerkja sem standa til boða í Dropp þjónustunni má nefna ELKO, Nespresso, S4S, ASOS og sendingar sem koma með UPS frá vefverslunum um allan heim þar með talið Amazon. N1 hefur afhent pakka fyrir um 150 netverslanir á þessu ári

Þjónustan nú einnig á landsbyggðinni

Upphaflega var hægt að fá vörurnar afhentar á þjónustustöðvum á höfuðborgarsvæðinu en nú hefur þjónustan verið tekin upp á nær öllum þjónustustöðvum N1 á landsbyggðinni.

„Það er okkur kappsmál að landsbyggðin njóti sömu þjónustu og íbúar höfuðborgarsvæðisins og það eru því ánægjuleg tímamót að vera búin að loka hringnum í kringum landið okkar,“ segir Jón Viðar Stefánsson, forstöðumaður verslunasviðs N1, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK