Nýju höfuðstöðvarnar á áætlun

Gegnt Hafnartorgi. Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans verða teknar í notkun á …
Gegnt Hafnartorgi. Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans verða teknar í notkun á síðari hluta næsta árs. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verk, segir uppsteypu á nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Hörpu ganga prýðilega. Um það bil 75% af verkinu sé nú lokið.

ÞG verk varð hlutskarpast í útboði um uppsteypu á húsinu sem verður um 16.500 fermetrar, að meðtöldum bílakjallara. Niðurstaða útboðsins lá fyrir í ágúst 2019 og hófst uppsteypan í september sama ár. Stefnt er að því að ljúka henni í júlí.

Þorvaldur segir eftir að steypa tvær til þrjár hæðir á suðurhlutanum, sem snýr að Hafnartorgi, og svo eina til tvær hæðir í öðrum áföngum.

Suðurhluti höfuðstöðvanna verður hæsti hluti byggingarinnar sem er lægri norðanmegin við Hörpu. Sameiginlegur bílakjallari verður undir Hörpu, höfuðstöðvum Landsbankans og Hafnartorgi með stæðum fyrir alls um 1.100 bíla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK