Norðurál óskar íhlutunar Samkeppniseftirlitsins

Norðurál er með starfsemi á Grundartanga.
Norðurál er með starfsemi á Grundartanga. mbl.is/Sigurður Bogi

Norðurál hefur sent erindi til Samkeppniseftirlitsins, þar sem óskað er íhlutunar vegna þess sem Norðurál telur vera misnotkun Landsvirkjunar á markaðsráðandi stöðu á skammtímamarkaði með raforku.

Í tilkynningu frá Norðuráli segir að það hafi í allnokkur ár ekki haft nægjanlega orku í gegnum langtímasamninga til að halda uppi fullri framleiðslu í álverinu.

Auk þess hafi Norðurál tímabundið þurft að kaupa raforku á skammtímamarkaði til að fylla upp í skerðingar vegna viðhalds hjá öðrum orkuframleiðendum sem Norðurál kaupir orku af.

„Í sumarbyrjun kom þessi staða upp, þ.e. að Norðurál þurfti að kaupa raforku á skammtímamarkaði til að forðast tjón í kerskála vegna skerðinga og til að geta haldið uppi fullri framleiðslu. Nær öll raforka á íslenska skammtímamarkaðnum er framleidd af Landsvirkjun,“ segir í tilkynningunni. Bent er á að eftirspurn eftir raforku hafi dregist saman á Íslandi og staða í lónum Landsvirkjunar hafi verið yfir meðallagi.

„Við slíkar aðstæður ætti verð að vera lægra en ella. Það verð sem Landsvirkjun vildi fá var hins vegar yfir því verði sem Norðurál keypti frá minni orkuframleiðanda, að því marki sem sá hafði slíka orku til reiðu, var yfir meðalverði Landsvirkjunar árin á undan og yfir verði á Norræna skammtímamarkaðnum, Nord Pool.  

Norðurál telur að Landsvirkjun hafi sem markaðsráðandi aðili á markaði með skammtímaorku misnotað stöðu sína gagnvart Norðuráli með því að krefjast ósanngjarns og óhóflegs endurgjalds fyrir umframorku.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK