Hlutafjárútboði frestað fram í ágúst

Eins og áður hefur verið tilkynnt er samkomulag við helstu …
Eins og áður hefur verið tilkynnt er samkomulag við helstu hagaðila Icelandair Group forsenda þess að félagið geti hafið fyrirhugað hlutafjárútboð og lokið við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Með því að ljúka samkomulagi við helstu hagaðila Icelandair Group í júlímánuði mun Icelandair hefja hlutafjárútboð í ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar, en stefnt var að því að samkomulag þetta lægi fyrir í dag, 29. júní, svo hægt væri að hefja hlutafjárútboð.

Eins og áður hefur verið tilkynnt er samkomulag við helstu hagaðila Icelandair Group forsenda þess að félagið geti hafið fyrirhugað hlutafjárútboð og lokið við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins.

Viðræður hafa staðið yfir undanfarnar vikur og hefur þegar náðst góður árangur, að því er segir í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar, en samningaviðræður við nokkra lykilaðila standa þó enn yfir. Á meðal þeirra eru flugvélaleigusalar og færsluhirðir. Félagið á jafnframt enn í samningaviðræðum við Boeing um frekari bætur vegna kyrrsetningar MAX-vélanna og afhendingar véla sem enn eru útistandandi samkvæmt samningi.

„Samningaviðræður við þessa aðila hafa þokast áfram á undanförnum vikum og gætu skilað niðurstöðu á næstu dögum haldi viðræðurnar áfram á uppbyggilegum nótum,“ segir í tilkynningu.

„Með því að ljúka samkomulagi við fyrrnefnda aðila í júlímánuði mun Icelandair Group hefja hlutafjárútboð í ágúst. Fari svo að samningaviðræður skili ekki tilætluðum árangri, mun félagið þurfa að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu án aðkomu íslenskra stjórnvalda. Slíkt ferli gæti tekið allt að tólf mánuði og á meðan á því stæði þyrfti félagið að fresta öllum greiðslum til fjármögnunaraðila félagsins.“

Handbært fé Icelandair Group er nú um 150 milljónir Bandaríkjadala (tæplega 21 milljarður íslenskra króna), sem  er umfram þriggja mánaða rekstrarkostnað miðað við núverandi aðstæður.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK