Lækkun fasteignamats og bætt afkoma

Reitum fasteignafélagi hefur borist tilkynning frá Þjóðskrá Íslands um lækkun á fasteignamati á hluta af Kringlu fyrir árin 2015-2019, en félagið og Þjóðskrá hafa um nokkurt skeið átt í samskiptum um leiðréttingu á tilteknum einingum í húsinu í kjölfar athugasemda sem Reitir hafa gert við skráningu þeirra.

Alls lækkar nú fasteignamat áranna uppsafnað um tæp 16% og áætlar félagið að lækkun á álögðum gjöldum Reita fyrir húsið sé tæpar 150 milljónir króna fyrir allt tímabilið en þar af lækka álögð gjöld fyrir árið 2019 um rúmar 15 milljónir króna.

Vegna þessa telur félagið þörf á því að hækka horfur um afkomu félagsins á árinu. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði nú á bilinu 7.700 - 7.850 milljónir króna í stað 7.550 - 7.700 m.kr. áður. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á tekjum en þær eru áætlaðar á bilinu 11.700 - 11.850 m.kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK