Kristín Linda Árnadóttir ráðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar

mbl.is/Jón Pétur

Kristín Linda Árnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá árinu 2008. Þar áður gegndi hún starfi sviðsstjóra lögfræði- og stjórnsýslusviðs stofnunarinnar og var staðgengill forstjóra. Hún starfaði sem lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu á skrifstofu laga og upplýsingamála frá 1998 til 2007.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Kristín Linda Árnadóttir.
Kristín Linda Árnadóttir. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Linda lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998, meistaranámi í alþjóðlegum umhverfisfræðum (LUMES) frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 2002 og LL.M. meistaragráðu í Evrópurétti við lagadeild Háskólans í Lundi árið 2003. Hún hefur lagt stund á stjórnunarnám við Saïd Business School í Oxford háskóla. Kristín var jafnframt um tíma stundakennari og prófdómari í námskeiðum í umhverfisrétti við háskólastofnanir á Íslandi.

Kristín Linda hefur tekið þátt í ýmsu alþjóðasamstarfi á vettvangi umhverfismála. Meðal annars sem fulltrúi Íslands í evrópsku neti ábyrgðaraðila á innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins, evrópsku neti forstjóra evrópskra umhverfisstofnana, fulltrúi Íslands í stýrihópi um norræna umhverfismerkið Svaninn og stýrir nú vinnuhópi í Norðurskautsráðinu sem vinnur að því að draga úr losun sóts og metans (EGBMC) á norðurslóðum, segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK