JetBlue-flug gæti lækkað verð

Ekki er talið að mikil áhrif verði af flugi JetBlue …
Ekki er talið að mikil áhrif verði af flugi JetBlue yfir Atlantshafið ífyrstu. Horfurnar munu þó velta á því hversu lágt verð félagið mun bjóða. Ljósmynd/Tomás Del Coro

JetBlue tilkynnti á miðvikudag að félagið hygðist hefja beint flug frá New York og Boston til London árið 2021. Segist félagið miða við að fleiri ferðir verði daglega frá báðum borgum og verður flogið með Airbus A321LR vélum. Ekki hefur verið ákveðið til hvaða flugvalla í London verður flogið. Þá er ekki ljóst hvaða áhrif þessar flugferðir lággjaldaflugfélagsins geta haft á íslenskan markað.

Verði af áformum félagsins fjölgar ferðum milli Ameríku og Evrópu án viðkomu á Íslandi og vekur athygli að félagið sé lággjaldafélag sem, að eigin sögn, mun leggja áherslu á að verða valkostur fyrir bæði almenna ferðamenn og þá sem ferðast vegna vinnu.

„Vöxtur inn á evrópskan markað er eðlilegt næsta skref fyrir JetBlue með hliðsjón af borgaráætlun félagsins og er London stærsti áfangastaðurinn sem JetBlue hefur til þessa ekki þjónustað,“ segir í tilkynningunni.

„Markaðsaðgangur fyrir minni flugfélög hefur aldrei verið takmarkaðri. [...] Fáum við tækifæri til þess að keppa [við stærri félög] getur JetBlue haft veruleg áhrif á verðlækkanir og aukið umferð,“ er haft eftir Joanna Geraghty, rekstrarstjóra JetBlue, í tilkynningu félagsins. Samkvæmt svari JetBlue við fyrirspurn Morgunblaðsins hafði þrot WOW ekki áhrif á ákvörðunina og er tekið fram að þetta hafi verið til skoðunar í lengri tíma.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK