1,9 milljarða tap hjá Valitor

Höfuðstöðvar Valitor við Dalshraun í Hafnarfirði.
Höfuðstöðvar Valitor við Dalshraun í Hafnarfirði. Ljósmynd/Valitor

Heildarvelta Valitors nam 21,4 milljörðum króna árið 2018. Nettótekjur námu 9,4 milljörðum á árinu og er það 25% aukning frá árinu á undan. Rekstrarniðurstaða ársins 2018 var neikvæð um 1,9 milljarða samanborið við hagnað upp á um 900 milljónir árið á undan.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Síðastliðið ár einkenndist af miklum fjárfestingum Valitor í vöruþróun og markaðssókn en þar ber hæst alrásarlausn (omni-channel solution) Valitor. Meðal nýrra viðskiptavina eru stórar verslanakeðjur á Írlandi og í Bretlandi ásamt Ecco þar sem Valitor þjónar yfir 200 skóverslunum fyrirtækisins í Evrópu þegar innleiðingu er að fullu lokið,“ segir í tilkynningunni.

Stærsti samstarfsaðili Valitors í færsluhirðingu hóf að sinna þeirri þjónustu sjálfur í júlí og flutti þar með veltu sína frá Valitor. Niðurstaðan hafði talsverð áhrif á vöxt tekna og viðskipta Valitors á árinu, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að Valitor standi vel að vígi á áhugaverðum mörkuðum lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Bretlandi og á Írlandi sem og varðandi viðskipti við stærri verslanakeðjur í Evrópu.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors. Mynd/Valitor

„Þrátt fyrir taprekstur var niðurstaða ársins umfram áætlanir og fjárhagsstaða félagsins er sterk. Valitor er vaxtarfyrirtæki og framsækin vöruþróun er kjölfesta verðmætasköpunar og aðgreiningar okkar á markaði. Vaxtarstefna okkar er langtímahugsun og þess vegna fórnum við skammtímahagnaði fyrir öfluga sérstöðu á markaði. Kauphegðun neytenda er að breytast hratt og við hjálpum kaupmönnum að fóta sig betur í þessu nýja umhverfi. Hjálpum þeim varðandi tæknilega hlið mála með alrásar (omni-channel) hugbúnaðarlausn okkar sem sameinar þjónustu fyrir snjalltæki, netviðskipti og þjónustu við búðarborðið. Jafnframt veitum við kaupmönnum ráðgjöf um það hvernig best er að færa sér þetta breytta umhverfi í nyt,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK