Stefán Atli til Öryggismiðstöðvarinnar

Stefán Atli Rúnarsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur á markaðssviði …
Stefán Atli Rúnarsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur á markaðssviði Öryggismiðstöðvarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Stefán Atli Rúnarsson hefur gengið til liðs við Öryggismiðstöðina og tekið við starfi sérfræðings á markaðssviði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryggismiðstöðinni.

Stefán Atli er einn af stofnendum markaðs- og framleiðslufyrirtækisins KALT sem sérhæfir sig í gerð myndefnis fyrir samfélagsmiðla og framleiðslu á myndefni í samstarfi við áhrifavalda. Hann er einnig hluti af afþreyingarmiðlinum ICE COLD sem sendir meðal annars frá sér efni á borð við beinar útsendingar á tölvuleiknum Fortnite.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að ganga til liðs við Öryggismiðstöðina sem hefur lagt mikla áherslu á stafræna markaðssetningu á undanförnum árum. Á því sviði nýtast mínir hæfileikar og reynsla einkar vel. Það eru spennandi tímar fram undan hjá Öryggismiðstöðinni og ég er mjög ánægður með að vera genginn til liðs við þetta flotta fyrirtæki. Það er skemmtileg áskorun að takast á við ný verkefni á stærra sviði en áður,“ segir Stefán Atli í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK