Kjörin „í samræmi við starfskjarastefnu“

Bankaráð Landsbankans hefur sent frá sér tilkynningu vegna umræðu um …
Bankaráð Landsbankans hefur sent frá sér tilkynningu vegna umræðu um 82% launahækkun bankastjóra Landsbankans. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Bankaráð Landsbankans hefur sent frá sér tilkynningu vegna umræðu um 82% launahækkun bankastjóra Landsbankans, þar sem fram kemur að bankaráð sé meðvitað um að kjör bankastjóra séu „vissulega góð“, en að þau séu „í samræmi við starfskjarastefnu bankans, sem hluthafar hafa samþykkt, um að starfskjör eigi að vera samkeppnishæf en þó ekki leiðandi.“

„Að mati bankaráðs hefur lengi verið ljóst að breyta þyrfti kjörum bankastjóra Landsbankans og færa þau nær þeim kjörum sem starfskjarastefnan kveður á um,“ segir í tilkynningunni og það síðan rakið að laun bankastjóra Landsbankans hafi verið hækkuð tvívegis, eftir að ákvörðun um laun bankastjóra Landsbankans og fleiri stjórnenda var færð undan kjararáði.

Þá segir bankaráð að á þeim tíma sem kjör bankastjóra hafi verið ákvörðuð af kjararáði, hafi sagt í eigendastefnu ríkisins að laun stjórnenda ættu að standast samanburð á þeim sviðum sem viðkomandi fyrirtæki starfaði á, án þess að vera leiðandi.

„Þessi tilhögun var gagnrýnd af þáverandi bankaráði Landsbankans en beiðnir til stjórnvalda um breytingar náðu ekki fram að ganga. Afleiðingin varð sú að í mörg ár voru kjör bankastjóra Landsbankans töluvert lægri en laun hjá stjórnendum sambærilegra fyrirtækja. Þau voru jafnframt lægri en laun framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þær breytingar sem bankaráð hefur nú gert á kjörum bankastjóra Landsbankans eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans sem hluthafar hafa samþykkt og hefur verið óbreytt í mörg ár,“ segir í tilkynningunni, sem má lesa í heild sinni hér að neðan.

Frá bankaráði Landsbankans vegna umræðu um laun bankastjóra:

„Hækkun á launum bankastjóra Landsbankans hefur verið gagnrýnd. Sú gagnrýni er skiljanleg, enda er Landsbankinn að langstærstu leyti í eigu ríkisins. Undanfarna daga hefur launahækkunin verið sett í samhengi við almennar umræður um kjaramál. Bankaráð er meðvitað um að kjör bankastjóra eru vissulega góð en þau eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans, sem hluthafar hafa samþykkt, um að starfskjör eigi að vera samkeppnishæf en þó ekki leiðandi.

Að mati bankaráðs hefur lengi verið ljóst að breyta þyrfti kjörum bankastjóra Landsbankans og færa þau nær þeim kjörum sem starfskjarastefnan kveður á um. Þegar ákvörðun um laun bankastjóra Landsbankans og fleiri stjórnenda voru færð undan kjararáði með lögum sem Alþingi samþykkti, hafa laun bankastjóra Landsbankans hækkað tvívegis, annars vegar frá 1. júlí 2017 og hins vegar frá 1. apríl 2018. Við þá ákvörðun var ljóst að launin voru lægri en laun æðstu stjórnenda hjá öðrum stórum fjármálafyrirtækjum.

Forsagan er sú að kjararáði var árið 2009 falið að úrskurða um laun bankastjóra Landsbankans. Á sama tíma sagði í eigendastefnu ríkisins að laun stjórnenda ættu að standast samanburð á þeim sviðum sem viðkomandi fyrirtæki starfaði á, án þess að vera leiðandi. Þessi tilhögun var gagnrýnd af þáverandi bankaráði Landsbankans en beiðnir til stjórnvalda um breytingar náðu ekki fram að ganga. Afleiðingin varð sú að í mörg ár voru kjör bankastjóra Landsbankans töluvert lægri en laun hjá stjórnendum sambærilegra fyrirtækja. Þau voru jafnframt lægri en laun framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þær breytingar sem bankaráð hefur nú gert á kjörum bankastjóra Landsbankans eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans sem hluthafar hafa samþykkt og hefur verið óbreytt í mörg ár.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK