Vextir Seðlabanka haldast óbreyttir

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5% að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Hagvöxtur á fyrstu níu mánuðum þessa árs var 5%, samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum, og er það lítillega meira en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nóvemberspá sinni.

Verðbólga hefur hins vegar aukist eftir því sem liðið hefur á árið og er það í takt við spá bankans og í nóvember mældist verðbólga 3,3%. Vegur þar þyngst mikil hækkun innflutningsverðs undanfarna mánuði en gengi krónunnar hefur lækkað um liðlega 11% frá áramótum.

Hefur gengislækkun og áhyggjur af komandi kjarasamningum komið fram í væntingum um frekari aukningu verðbólgu. Segir í tilkynningu Seðlabankans að „taumhald peningastefnunnar“, eins og það mælist í raunvöxtum Seðlabankans, hafi því heldur losnað á ný. Á móti komi þó vísbendingar um að það muni halda áfram að draga úr spennu á næstunni. „Þá er hækkun verðbólguvæntinga frá síðasta fundi enn sem komið er fyrst og fremst bundin við skammtímavæntingar og hægt hefur á lækkun gengis krónunnar.“

Ríki og vinnumarkaður hafa áhrif á fórnarkostnað á lægra atvinnustigi

Tilkynnt var nýlega að til standi að losa síðasta hluta aflandskrónueigna sem lokuðust inni við innleiðingu fjármagnshafta í kjölfar fjármálakreppunnar. Úrlausn slíks fortíðarvanda eigi ekki að lækka gengi krónunnar og því muni Seðlabankinn grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að forðast slíkt og er það samræmi við fyrri yfirlýsingar bankans. „Í því samhengi mun hann einnig horfa til þess að vísbendingar eru um að gengislækkunin undanfarið hafi fært raungengið niður fyrir jafnvægisgildi sitt.“

Segir í tilkynningu Seðlabankans að peningastefnan muni á „næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Ítrekar peningastefnunefnd að hún hafi bæði vilja og tæki sem til þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. Haldi verðbólguvæntingar hins vegar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið, kalli það hins vegar á harðara taumhald peningastefnunnar.

Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, muni þá hafa áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.

Vextir verða því sem hér segir:

Daglán 6,25%

Lán gegn veði í verðbréfum 5,25%

Innlán bundin í 7 daga 4,50%

Viðskiptareikningar 4,25%

Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 4,25%

Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK