94% nýrra íbúðalána óverðtryggð

Nýjar íbúðir rísa í Jaðarleiti. Mynd úr safni.
Nýjar íbúðir rísa í Jaðarleiti. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Ásett verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkar nú hraðar en kaupverð. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs, en þar segir að vísitala ásetts verðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 7,2% sl. ár, en á sama tíma hafi vísitala íbúðaverðs hækkað um 4,1%. 

Hefur ásett fermetraverð nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu hækkað áberandi mikið frá því í október í fyrra eða um 17%. Eru þær nýju íbúðir sem settar eru á sölu nú minni en áður og er það talið geta skýrt að hluta hvers vegna fermetraverð nýbygginga hefur hækkað svona hratt.

17% einstaklinga, 18 ára eða eldri, eru á leigumarkaði og flestir telja líkur á að vera þar áfram næstu mánuði.

Vildu frekar eiga en leigja

Samkvæmt nýjustu könnun Íbúðalánasjóðs telja hlutfallslega jafn margir landsmenn að þeir verði á leigumarkaði eftir hálft ár og voru þeirrar skoðunar í september sl. eða 17% einstaklinga 18 ára og eldri. Flestir leigjendur, eða 86%, myndu þó fremur velja að búa í eigin húsnæði en vera á leigumarkaði ef nægjanlegt framboð væri af hvoru tveggja.

Þegar ný íbúðalán heimilanna voru skoðuð má þar sjá mikla aukningu í óverðtryggðum lánum þetta haustið. Í október námu ný íbúðalán, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, alls um 14,3 milljörðum króna og  voru óverðtryggð lán mikill meirihluti þeirrar fjárhæðar, eða 13,4 milljarðar króna. Voru óverðtryggð lán því um 94% af hreinum nýjum íbúðalánum fjármálastofnana til heimilanna í október.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK