Helgi Björgvinsson hefur verið ráðinn forstöðumaður yfir sölu á hugbúnaðarlausnum hjá Advania. Helgi fer fyrir sölu á sérsniðnum hugbúnaðarlausnum Advania auk lausna frá lykilbirgjum fyrirtækisins svo sem Salesforce, Software AG, Oracle og Outsystems.
í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Helgi sé með 20 ára víðtæka reynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hann hefur starfað sem viðskiptastjóri og við sölu og ráðgjöf hjá Origo frá árinu 2007. Þar á undan var hann kerfisstjóri og forstöðumaður yfir upplýsingatækni hjá Air Atlanta.