Fyrirhugaður samruni ógiltur

Lyf og heilsa rekur 30 apótek víðs vegar um landið.
Lyf og heilsa rekur 30 apótek víðs vegar um landið. mbl.is/Golli

Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna sem áformaður var með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. Ef samruninn yrði að veruleika myndi sú samkeppni sem Apótek MOS veitir umræddu útibúi Lyfja og heilsu hverfa, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Lyf og heilsa rekur 30 apótek um landið, annars vegar undir heitinu Lyf og heilsa og hins vegar Apótekarinn. Eru Lyf og heilsa einn stærsti lyfjasmásali á landinu. Opna rekur eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótek MOS. Það apótek var opnað um mitt ár 2016. Áður en Apótek MOS hóf starfsemi var eitt apótek í Mosfellsbæ, Apótekarinn í eigu Lyfja og heilsu. Eru Apótek MOS og Apótekarinn einu lyfjaverslanirnar í Mosfellsbæ í dag.

Fram kemur í tilkynningunni að rannsókn Samkeppniseftirlitsins sýni að innkoma Apóteks MOS hafi haft mjög góð áhrif á samkeppni á svæðinu. Apótek MOS hafi boðið upp á nýja þjónustu í formi skipulags verslunarinnar og aðstoðar lyfjafræðinga. Einnig hafi afgreiðslutími verið lengri en áður hafi tíðkast í Mosfellsbæ. Gögn málsins sýni að neytendur hafi tekið þessum nýja valkosti vel og hafi samkeppni frá Apóteki MOS veruleg áhrif á rekstur Apótekarans í Mosfellsbæ.

Upplýst sé í málinu að Lyf og heilsa hafi sett sig í samband við forsvarsmann Apóteks MOS um möguleg kaup á félaginu og samningar hafi náðst.

Tillögur sem fram voru lagðar duga ekki 

Samkeppniseftirlitið tók til rannsóknar að hvaða marki apótek í nágrannasveitarfélögum gætu veitt samkeppnislegt aðhald. Lét eftirlitið framkvæma neytendakönnun í Mosfellsbæ og setti sig í samband við fjölda lyfsöluleyfishafa á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós að lyfsala í Mosfellsbæ er mjög staðbundin.

Þannig sýnir rannsóknin að staðsetning apóteka hefur mikil áhrif á val viðskiptavina á apóteki. Neytendur kjósa almennt að eiga viðskipti við apótek sem eru sem næst heilsugæslustöðvum/læknastofum eða heimilum þeirra. Á þetta ekki síst við í tilviki aldraðra eða þegar aðkallandi er að fá lyf í hendur. Í samræmi við þetta sýndi rannsóknin að hátt hlutfall viðskiptavina apótekanna í Mosfellsbæ eru Mosfellingar, auk þess sem nokkuð langt er í önnur apótek. Af þessu leiðir að samruni umræddra apóteka myndi valda viðskiptavinum þeirra verulegu samkeppnislegu tjóni.

Tillögur sem Lyf og heilsa lögðu fram til að vinna gegn samkeppnishömlum vegna samrunans duga ekki að mati Samkeppniseftirlitsins og er því samruninn ógiltur í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK