Dómari krefur Tchenguiz um afsökunarbeiðni

Jóhannes Rúnar Jóhannsson lögmaður (t.v.) og Robert Tchenguiz fjárfestir.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson lögmaður (t.v.) og Robert Tchenguiz fjárfestir. Samsett mynd

Breskur dómari snupraði kaupsýslumanninn Robert Tchenguiz í gær og sagði kaupsýslumanninn skulda fólki og fyrirtækjum afsökunarbeiðni fyrir að málshöfðun á hendur þeim. Meðal annars fyrrverandi lögmanni Kaupþings, Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni. Tchenguiz ætlar ekki að biðjast afsökunar.

Dómarinn, Robin Knowles, sagði í réttarsalnum í gær að það sé skoðun réttarins að Robert Tchenguiz og aðrir þeir sem tóku þátt í málshöfðuninni skuldi endurskoðunarfyrirtækinu Grant Thornton afsökunarbeiðni. Sem og öðrum sem málshöfðunin laut að en fallið var frá fleiri milljóna punda skaðabótakröfu gagnvart Grant Thornton á mánudag.

Tchenguiz sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem hann sagði að það hvarflaði ekki að sér að biðjast afsökunar. Að sögn dómarans voru ásakanir hans á hendur Grant Thornton mjög alvarlegar, eins gagnvart tveimur eigendum fyrirtækisins; Stephen Akers og Hossein Hamedani auk Jóhannesar Rúnars sem var lögmaður Kaupþings á sínum tíma. 

Í síðustu viku sökuðu lögmenn Tchenguiz viðkomandi um samsæri um að fá bresku efnahagsbrotadeildina, Serious Fraud Office (SFO), til að hefja rannsókn á viðskipum hans við Kaupþing. 

Robert Tchenguiz var handtekinn ásamt bróður sínum, Vincent, af bresku lögreglunni árið 2011 þegar SFO rannsakaði hrun Kaupþings. Á mánudag féll hann frá kröfum sínum á hendur Grant Thornton, eigendum og Jóhannesi Rúnari, aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann átti að bera vitni í málinu. 

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK