Héraðsdómur Reykjavíkur tekur fyrir mál 71 farþega gegn flugfélaginu Wow air í hádeginu, en að sögn lögmanns farþeganna snýst málið um 400 evra greiðslu sem félagið neitaði að greiða fólkinu þrátt fyrir að 19 klukkustunda seinkun hafi orðið á flugi Wow air frá Varsjá til Íslands í apríl 2016.
Í ákvörðun Samgöngustofu kemur fram að Wow air skuli greiða hverjum farþeganna 400 evrur en samkvæmt Evrópureglugerð eiga farþegar rétt á þeirri upphæð í bætur vegna tafa nema ef ástæður seinkunar hafi orðið af óviðráðanlegum orsökum fyrir flugfélagið.
Flugfélagið heldur því fram að vegna þess að aðskotahlutur olli skemmdum á hreyfli þá sé ekki hægt að notast við þá túlkun Evrópudómstólsins að tæknibilanir flokkist ekki undir óviðráðanlegar aðstæður. Samgöngustofa metur það svo að ekki sé hægt að fallast á rök Wow.
Í frétt ruv.is kemur fram að Wow hafi ekki viljað una niðurstöðunni og hafi höfðað mál til að fá henni hnekkt fyrir dómi.
Páll Bergþórsson, lögmaður farþeganna, segir að farþegarnir hafi leitað lögfræðings þegar ekkert gekk að fá bæturnar eftir úrskurð Samgöngustofu. Málið er tekið fyrir í tvennu lagi, 22 farþegar eru í annarri fyrirtökunni og 49 í hinni.