Sjónarmiða hagsmunaaðila leitað

Fréttablaðið og Morgunblaðið eru stærstu dagblöð landsins.
Fréttablaðið og Morgunblaðið eru stærstu dagblöð landsins.

Samkeppniseftirlitið leitar nú sjónarmiða hagsmunaaðila vegna kaupa Árvakurs hf. og 365 miðla hf. á Póstmiðstöðinni ehf. Með samrunanum hyggjast samrunaaðilar sameina dreifikerfi sín fyrir dagblöð, tímarit og fjölpóst undir Póstmiðstöðinni, sem þeir hyggjast reka sem dótturfélag.

„Með tilkynningu þessari kallar Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum allra aðila sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, t.d. núverandi viðskiptavina framangreindra dreifingaraðila, keppinauta fjölmiðla Árvakurs og 365 miðla og öðrum þeim sem eiga einhvers konar viðskipti á þessu sviði eða sjá á markaðnum viðskiptatækifæri. Þá er einnig kallað eftir sjónarmiðum neytenda,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og Torg ehf., dótturfélag 365 miðla, er útgáfufélag Fréttablaðsins og um er að ræða stærstu dagblöð landsins. Póstmiðstöðin starfar á sviði dreifingar og hafa samrunaaðilar lýst sig reiðubúna til að tryggja aðgang þriðju aðila að dreifikerfi Póstmiðstöðvarinnar.

Samkeppniseftirlitið hefur ekki tekið afstöðu til framlagðra tillagna Árvakurs og 365 miðla og óskar eftir að sjónarmið hagsmunaaðila berist eigi síðar en 22. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK