Hanna ráðin til Omnom

Hanna Eiríksdóttir.
Hanna Eiríksdóttir. Ljósmynd/Saga Sig

Hanna Eiríksdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Omnom Chocolate og hefur störf seinni hluta sumars.

Undanfarin ár hefur hún starfað fyrir landsnefnd UN Women á Íslandi, meðal annars sem herferðar- og framkvæmdastýra. Einnig starfaði hún sem blaðamaður um fimm ára skeið. Hanna er blaðamaður að mennt frá Háskólanum í Florida og með meistaragráðu frá háskólanum í Sussex í mannréttindum.

Omnom er súkkulaðiframleiðandi sem býr til súkkulaði frá grunni ásamt því að reka eigin verslun. Fyrirtækið selur súkkulaðið í verslanir á Íslandi og flytur það einnig út. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK