Valin í bankaráð Seðlabankans

mbl.is/Ófeigur

Valið var nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands á þingfundi á Alþingi í dag. Aðalmenn í nýju bankaráði eru Þórunn Guðmundsdóttir, Gylfi Magnússon, Sigurður Kári Kristjánsson, Frosti Sigurjónsson, Bolli Héðinsson, Una María Óskarsdóttir og Jacqueline Claire Mallett.

Varamenn í nýju bankaráði eru Þórlindur Kjartansson, Hildur Traustadóttir, Kristín Thoroddsen, Bára Ármannsdóttir, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Vilborg Hansen og Ólafur Margeirsson.

Þórunn, Sigurður Kári og Frosti voru einnig aðalmenn í fráfarandi bankaráði. Þórlindur, Hildur, Kristín, Bára og Ólafur voru einnig áður varamenn í bankaráði. Fram komu tveir listar sem innihéldu samanlangt jafnmarga og sitja í bankaráðinu og því kom ekki til kosningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK