„Kom gott tilboð sem við samþykktum“

Kristján Loftsson hefur selt stóran hlut í HB Granda.
Kristján Loftsson hefur selt stóran hlut í HB Granda. mbl.is/Árni Sæberg

„Það kom gott tilboð sem við samþykktum, þetta er ekki flóknara,“ segir Kristján Loftsson sem seldi Guðmundi Kristjánssyni í Brimi stóran hlut í HB Granda.

Kristján segir að tilboðið hafi komið fyrir nokkrum dögum. Fyrst þurfti að fá viðskiptin samþykkt hjá stjórn Hvals hf. og Vogunar hf.

Spurður hvernig peningurinn verður notaður segir hann: „Þetta bar það brátt að. Ætli við leggjum þetta ekki bara inn á bók eins og var sagt í gamla daga, alla vega til að byrja með.“

Kristján bætir við: „Við erum bara ánægðir, annars værum við ekkert að þessu,“ segir hann aðspurður og á þar við Vogun hf. sem átti tæpar 611 millj­ónir hluta í HB Granda. „Ég vona að kaupandinn sé líka mjög ánægður. Ég óska honum alls hins besta.“

Kristján bætir við að Guðmundur hafi mánuð til að greiða fyrir hlutabréfin. „Menn eru ekkert með svona upphæðir undir koddanum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK