Úr samkeppni í samstarf um lagningu ljósleiðara

Viðgerð á ljósleiðara í Hveragerði sem slitnaði.
Viðgerð á ljósleiðara í Hveragerði sem slitnaði. mbl.is/Ómar

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag um samstarf við uppbyggingu ljósleiðara til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Samkomulagið felur í sér að hvort félag um sig taki að sér ákveðin svæði og leggi þar tvö sjálfstæð ljósleiðarakerfi, fyrir báða samningsaðila, í einni og sömu framkvæmdinni.

Í fréttatilkynningu um samstarfið segir að markmiðið sé að ná fram hagræðingu með því að koma í veg fyrir mögulegan tvíverknað, stytta verktíma og minnka jarðrask og áhrif á íbúa. Svæðin sem um ræðir eru í Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og verklok verða fyrir árslok.

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eiga í samkeppni og hafa því fengið undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu til þess að eiga með sér ofangreint samstarf. Telja félögin þetta samstarf vera til góða fyrir samningsaðila, viðskiptavini, sveitarfélög og neytendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK