Hagnaðist um 1,6 milljarða

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku.
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagnaður Kviku banka árið 2017 nam 1.591 milljónum króna en afkoma grunnrekstrar, sem er leiðrétt fyrir einskiptisliðum vegna samruna og skipulagsbreytinga, nam 1.919 milljónum króna. Arðsemi eiginfjár af grunnrekstri árið 2017 var 24,9%. 

Heildareignir 31. desember 2017 námu 75.597 milljónum króna. Eigið fé samstæðunnar 31. desember 2017 nam 10.982 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall 31. desember 2017 var 21,1%. 

Hagnaður Kviku af grunnrekstri árið 2017 nam 1.919 milljónum króna samanborið við 1.955 milljónir króna árið 2016. Einskiptisliðir vegna samruna og skipulagsbreytinga á árinu voru 328 milljónir króna og var hagnaður eftir einskiptiskostnaðarliði 1.591 milljónir króna, segir í tilkynningu.

Vöxtur var í hreinum vaxtatekjum og þóknanatekjum á árinu. Hreinar vaxtatekjur námu 1.563 milljónum króna og jukust um 47% á milli ára og skýrist það að miklu leyti af bættum fjármögnunarkjörum Kviku. Þóknanatekjur námu 3.033 milljónum króna á árinu 2017 og jukust um 5% á milli ára, en vöxtur var á nær öllum tekjusviðum bankans á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 3.670 milljónum króna á árinu 2017 og jókst um 14% á milli ára, en 328 milljónir skýrast af einskiptisliðum.

Kvika banki er sameinaður MP banki og Straumur.
Kvika banki er sameinaður MP banki og Straumur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Í lok árs 2017 námu heildareignir samstæðu Kviku 75,6 milljörðum króna samanborið við 59,6 milljarða króna í árslok 2016 og jukust um 27% á tímabilinu. Handbært fé nam tæpum 20,0 milljörðum króna og jókst um 8,0 milljarða á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu rúmum 25,3 milljörðum króna í lok árs 2017 og drógust saman um tæp 3% á milli ára. Almenn innlán námu rúmum 41,7 milljörðum króna og jukust um 9,3 milljarða króna á árinu.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir í tilkynningu: „Árið var viðburðaríkt í starfsemi Kviku og ytri vöxtur setti mark sitt á síðari helming ársins. Bankinn styrkti grunnstoðir sínar með kaupum á öllu hlutafé í Virðingu og Öldu sjóðum og er nú einn umsvifamesti aðilinn á eignastýringarmarkaði með um 263 milljarða í stýringu og tugi sjóða í rekstri. Í september tók bankinn einnig yfir fyrirtækjaráðgjöf Beringer Finance á Íslandi og er nú með eina öflugustu fyrirtækjaráðgjöf á Íslandi. Samþætting á starfsemi eininga sem þessara er flókið verkefni en hefur gengið mjög vel þökk sé því frábæra fólki sem starfar hjá bankanum.

Þrátt fyrir að ytri vöxtur væri fyrirferðarmikill gekk rekstur Kviku mjög vel á árinu 2017. Afkoma bankans var góð, fjármögnun bankans styrktist og vel gekk að halda rekstrarkostnaði á áætlun. Uppbygging félagsins hefur gengið vonum framar og var vöxtur bæði í þóknana- og vaxtatekjum.Veruleg kostnaðarsamlegð hefur náðst fram í kjölfar sameiningar við Virðingu og mun hún hafa jákvæð áhrif á rekstur bankans til framtíðar.

Horfur í rekstri Kviku eru prýðilegar. Bankinn er leiðandi í fjárfestingabankaþjónustu á innlendum markaði, reksturinn er sterkur og frekari sóknarfæri framundan. Unnið er að skráningu hlutabréfa bankans á Nasdaq First North og er stefnt að því að ljúka henni fyrir lok mars."

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK