Fjölgun íbúa, gott efnahagsástand og eftirspurn eftir leiguíbúðum hafa þrýst á fasteignaverð á Akureyri. Fyrir vikið hefur raunverð á fermetra í fjölbýli á Akureyri aldrei verið jafn hátt. Það var um 330 þúsund á þriðja fjórðungi 2017 sem er um 35 þús. kr. hærra á föstu verðlagi en 2006 og 2007.
Þetta kemur fram í greiningu Magnúsar Árna Skúlasonar, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics, fyrir Íslandsbanka, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.
Magnús Árni segir meginþorra kaupsamninga á Akureyri hafa verið undir 35 milljónum króna á tímabilinu frá apríl 2016 til mars 2017, eða 76% kaupsamninga. Það sé mun hagstæðara verð en til dæmis á höfuðborgarsvæðinu.