Íslensk fyrirtæki virkust á samfélagsmiðlum

AFP

Hvergi í Evrópu nota fleiri fyrirtæki samfélagsmiðla en á Íslandi. Árið 2017 notuðu 79% fyrirtækja á Íslandi semfélagsmiðla en í Evrópu var hlutfallið að meðaltali 47%. 

Þessu greinir Hagstofan frá en um er að ræða fyrirtæki með að lágmarki 10 starfsmenn. Samfélagsmiðlar voru flokkaðir eftir tegund miðils og á Íslandi voru 77% fyrirtækja með samskiptasíður, 17% með vefsíður til að deila margmiðlunarefni, 16% með bloggsíður/tilkynningasíður og 3% með wiki-síður.

Þá voru 82% fyrirtækja á íslandi með eigin vef, en 63% voru hvort tveggja með eigin vef og á samfélagsmiðlum.

Graf/Hagstofan.is
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK