Reginn kaupir turninn Höfðatorgi

Katrínartún 2 (turninn Höfðatorgi) er meðal stærstu eigna Fast-1.
Katrínartún 2 (turninn Höfðatorgi) er meðal stærstu eigna Fast-1. mbl.is/Golli

Fasteignafélagið Reginn hf. undirritaði í dag samning um einkaviðræður og helstu skilmála um fyrirhuguð kaup á öllu hlutafé dótturfélaga Fast-1 slhf., HTO ehf. og Fast-2 ehf.  Stærstu eignir félaganna eru Katrínartún 2 (turninn Höfðatorgi) og Borgartún 8-16. Aðrar eignir eru Skúlagata 21, Vegmúli 3 og Skútuvogur 1.

Samtals telur fasteignasafnið 44 þúsund fermetra ásamt bílakjallara með yfir 600 bílastæðum, að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Eru 98% eignanna í útleigu til traustra leigutaka, en meðal stærstu leigutaka eru Reykjavíkurborg, Fjársýsla ríkisins, Reiknistofa bankanna og Fjármálaeftirlitið.

Með viðskiptunum verður eignasafn Regins hf. 366 þúsund fermetrar.  „Falla fyrirhuguð kaup vel að fjárfestingastefnu félagsins sem felur m.a í sér að auka hlut félagsins í hágæða atvinnuhúsnæði á sterkum markaðssvæðum,“ að  því er segir í tilkynningu.

Samningurinn felur í sér einkaviðræður um kaupin með það að markmiði að komast að samkomulagi um efni endanlegs kaupsamnings, en viðræðurnar munu byggja á forsendum og skilmálum samningsins að teknu tilliti til niðurstöðu áreiðanleikakannana.

Fyrirhuguð kaup miðast við að heildarvirði (e. EV) HTO og Fast-2 sé metið á 23.200 m.kr. Endanlegt kaupverð hlutafjár mun svo ráðast af skuldastöðu félaganna við afhendingu. Gangi viðskiptin eftir mun Reginn gefa út nýtt hlutafé að markaðsvirði 5.800 m.kr. á meðalgengi hlutabréfa Regins undangengins mánaðar fyrir undirritun kaupsamnings, auk þess sem viðskiptin verða fjármögnuð með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki undir útgáfuramma Regins. 

Takmörkun verður á viðskiptum með 2/3 af hlutum sem gefnir verða út vegna viðskiptanna, í annars vegar 2 mánuði og hins vegar 4 mánuði.

Viðskiptin eru m.a. háð skilyrðum um að samkomulag náist um endanlegan kaupsamning, niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár, samþykki stjórnar fyrir útgáfu skuldabréfaflokks og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki á 2. ársfjórðungi 2018.

Ef af kaupunum verður er áætlað að EBITDA Regins hækki um 1.240 milljónir króna á ársgrundvelli og eignasafn stækki um 14% miðað við fermetra. „Yield“ kaupanna er um 5,3%.

Nýr eignarhlutur í Regin, ef af verður, yrði tæp 13% sem afhendist seljanda, Fast-1 slhf. Á meðal stærstu hluthafa Fast-1 eru Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna með tæplega 20% hlut hver, Festa lífeyrissjóður með tæplega 10% hlut og Almenni lífeyrissjóðurinn með tæplega 7% hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK