Leitað að þeim sem áttu bætur

Fjöldi manns á von á að fá endurgreiddar bætur. Vinnumálastofnun …
Fjöldi manns á von á að fá endurgreiddar bætur. Vinnumálastofnun hefur greitt 158 milljónir til baka. mbl.is/Golli

Alþingi var óheimilt að skerða atvinnuleysisbótarétt þeirra sem þegar höfðu virkjað rétt sinn fyrir 1. janúar 2015. Þetta kom fram í dómi Hæstaréttar 1. júní sl. um styttingu á bótatímabili atvinnuleysistrygginga úr 36 mánuðum í 30 mánuði.

Vinnumálastofnun komst að því að rúmlega 2.300 manns kynnu að eiga rétt á lengingu á tryggingatímabili sínu og/eða afturvirkum greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli dómsins. Strax í júní lengdi Vinnumálastofnun bótatímabil 1.175 einstaklinga, sem þáðu atvinnuleysistryggingar, úr 30 mánuðum í 36 mánuði. Þetta fólk átti ekki rétt til greiðslu afturvirkra atvinnuleysisbóta, samkvæmt frétt Vinnumálastofnunar.

Í kjölfarið var haft samband við 1.181 einstakling sem talið var að kynni að eiga rétt á afturvirkum greiðslum atvinnuleysisbóta eða lengingu á bótatímabili sínu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK