Fasteignaverð tekur kipp

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1% í ágúst. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 2,4% og verð á fjölbýli um 0,5%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hagsjá Landsbankans en vísað er í tölur Þjóðskrár Íslands frá því í gær.

„Hækkanir frá fyrra ári eru enn mjög miklar. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð á fjölbýli hækkað um 18,4% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 20,8%. Heildarhækkunin nemur 19,1%, sem er svipað og í síðasta mánuði. Á þann mælikvarða hefur lækkun fasteignaverðs stöðvast, a.m.k. í bili.

Verð á fjölbýli hækkaði í síðasta mánuði eftir litlar breytingar síðustu tvo mánuði. Það virðist því sem meiri ró sé yfir þeim markaði en verið hefur, en engu að síður er hækkunin um 1% nú töluverð. Verð á sérbýli hækkar enn í svipuðum takti og verið hefur, eða um u.þ.b. 20% á ári.

Vangaveltur um mögulega kólnun á markaðnum fengu því smá mótbyr með ágústtölunum, þar sem hækkanirnar nú eru enn miklar í sögulegu samhengi.

Raunverð fasteigna hefur þannig hækkað um u.þ.b. 23% á einu ári, frá ágúst 2016 til ágúst 2017.

Sé fjöldi viðskipta til lengri tíma skoðaður er nokkuð ljóst að tími samfellds vaxtar milli ára er liðinn, allavega í bili. Sé meðalfjöldi viðskipta á þessu ári borinn saman við sömu stærðir á síðustu árum má sjá að dregið hefur úr viðskiptum bæði með fjölbýli og sérbýli.

Töluverð umræða hefur verið um mögulega kólnun fasteignamarkaðar eftir mun minni verðhækkanir en áður í júní og júlí. Litlar hækkanir áttu hins vegar einungis við um fjölbýli á þessum tíma; hækkanir á sérbýli voru áfram miklar. Tölurnar núna snúa í dálítið aðra átt og svo virðist sem töluvert líf sé í markaðnum. Spurningunni um hvort markaðurinn sé að kólna er því ekki hægt að svara með nokkurri vissu enn sem komið er,“ segir enn fremur í hagsjá Landsbankans en hana er hægt að lesa í heild hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK