Innkallar Gestus-pastasósu

Sósunni var dreift í allar verslanir Krónunnar, Kjarvals og Nóatún …
Sósunni var dreift í allar verslanir Krónunnar, Kjarvals og Nóatún Austurveri. mbl.is/Hjörtur

Kaupás hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað pastasósu frá Gestus vegna aðskotahlutar í krukku.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Krónunni.

Varan heitir Pastasauce Classico og einskorðast innköllunin við þá vöru sem rennur út 23. mars 2020.

Vörunni var dreift í allar verslanir Krónunnar og Kjarvals um allt land og einnig í Nóatúni Austurveri.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun og fá endurgreitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK